03.02.22 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kristín Mcmillan í HK (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK hefur samið við Kristínu Anítudóttur Mcmillan, hún mun spila með liðinu í sumar. Kristín kemur til félagsins frá Grindavík þar sem hún er uppalin.
Hún spilaði átján leiki í Lengjudeildinni í fyrra en hafði fyrir það tímabil ekki spilað síðan 2017, meiðsli héldu henni utan vallar.
Kristín var fyrirliði Grindavíkur síðasta sumar og hefur samtals leikið 76 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 3 mörk.

„Tilfinningin er mjög góð, ég er ótrúlega spennt fyrir komandi tímabili. Mér líst vel á hópinn og alla umgjörð og starfsfólkið í kringum liðið. Ég er spennt að prufa eitthvað nýtt og takast á við nýjar áskoranir í nýju umhverfi,“ sagði Kristín við undirskrift.
HK spilar í Lengjudeildinni á komandi tímabili og er Guðni Þór Einarsson þjálfari liðsins.
HK spilar í Lengjudeildinni á komandi tímabili og er Guðni Þór Einarsson þjálfari liðsins.

Kristín Anítudóttir

Mynd: HK