Fotbolti.net
03.02.22 - 19:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lewis og Clark settir út í kuldann (Staðfest)

Lewis og Clark settir út í kuldann (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fimm nýir leikmenn voru kynntir hjá Newcastle í janúar en þeir Kieran Trippier, Chris Wood, Bruno Guimaraes, Dan Burn og Matt Targett gengu allir til liðs við félagið.
Newcastle hefur tilkynnt 25 manna leikmannahóp sem leikur í úrvalsdeildinni út tímabilið. Það vekur athygli að þrír leikmenn eru utan hóps, Ciaran Clark, Jamal Lewis og Isaac Hayden.

Hayden er meiddur og verður að öllum líkindum frá út tímabilið. Clark hefur verið mikið gagnrýndur fyrir frammistöðuna sína á leiktíðinni. Þá var Targett fenginn og því færri tækifæri fyrir Lewis.

Clark og Lewis neituðu að fara á láni í janúar en þeir gætu þó enn farið þar sem glugginn er enn opinn sumstaðar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.