03.03.14 - 22:15
Ívan Guðjón Baldursson
Malesani rekinn frá Sassuolo eftir fimm leiki (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sassuolo, botnlið ítölsku efstu deildarinnar, er búið að reka Alberto Malesani eftir aðeins fimm leiki við stjórnvöl félagsins.
Malesani tók við af Eusebio Di Francesco undir lok janúar en félagið ákvað að endurráða Di Francesco eftir slakan árangur Malesani við stjórnvölinn.

,,Sassuolo tilkynnir að Alberto Malesani er ekki lengur þjálfari aðalliðsins,\" stendur í yfirlýsingu á vefsíðu félagsins.
,,Malesani á skilið þakkir fyrir fagmennsku og fyrir að virða skuldbindingar sínar á erfiðum tíma fyrir félagið.
,,Eusebio Di Francesco tekur við störfum aðalliðsþjálfara.\"
Það var gríðarlega óvænt í fyrra þegar Sassuolo, sem hefur alltaf leikið í neðri deildum Ítalíu, gerði sér lítið fyrir og vann Serie B undir stjórn Di Francesco.

Heimild: Soccerway