Fotbolti.net
03.03.16 - 21:54
Magnús Már Einarsson

Alexander Veigar í Grindavík (Staðfest)

Alexander Veigar og Jónas Þórhallsson formaður knattspyrnudeildar.

Alexander Veigar og Jónas Þórhallsson formaður knattspyrnudeildar.

Canon

Mynd: Grindavík

Alexander Veigar Þórarinsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Grindavík á nýjan leik.

Alexander skrifaði undir tveggja ára samning við Grindvíkinga í kvöld.
Alexander hjálpaði Þrótturum upp í Pepsi-deildina í fyrra en eftir tímabilið yfirgaf hann félagið og flutti erlendis.

Þessi 28 ára gamli miðjumaður er nú kominn heim og ætlar að taka slaginn með Grindavík í 1. deildinni í sumar.

Alexander spilaði síðast með Grindavík árið 2008 en í millitíðinni hefur hann leikið með Fram, Reyni Sandgerði, BÍ/Bolungarvík og Þrótti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.