Fotbolti.net
03.03.16 - 15:47
Magnús Már Einarsson

Viktor Örn í KV (Staðfest)

Viktor Örn í KV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Vinstri bakvörðurinn Viktor Örn Guðmundsson hefur gengið til liðs við KV í 2. deildinni.

Viktor spilaði á síðasta tímabil með Fjarðabyggð í 1. deildinni.
Viktor er uppalinn hjá FH en hann lék meðal annars sextán leiki með liðinu þegar það varð Íslandsmeistari árið 2012.

Sumarið 2014 spilaði Viktor með Fylki og KA og í fyrra skoraði hann þrjú mörk í nítján leikjum í 1. deildinni með Fjarðabyggð.

Viktor hefur æft með KV að undanförnu og spilað æfingaleiki en hann gæti spilað sinn fyrsta mótsleik gegn BÍ/Bolungarvík í B-deild Lengjubikarsins á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.