Fotbolti.net
03.04.13 - 07:00
Magnús Már Einarsson

Eldin Ceho og Hilmar Þór í Sindra (Staðfest)

Hilmar Þór Kárason.

Hilmar Þór Kárason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Sindri hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í annarri deild karla í sumar.

Félagið hefur fengið Eldin Ceho til liðs við sig en hann er 28 ára gamall Bosníumaður sem getur leikið bæði aftarlega á miðjunni og í vörninni. Ceho hefur undanfarin ár leikið í fyrstu deildinni í Bosníu.
Þá fékk Sindri einnig framherjann Hilmar Þór Kárason á láni frá Tindastóli í síðustu viku.

Hilmar Þór er tvítugur en hann skoraði þrettán mörk í 14 leijum með Drangey í þriðju deildinni í fyrra.

Sindri hefur einnig náð samningum við Anel Repa Beslija og Fijad Mehanovic en þeir léku báðir með liðinu í fyrra.

Anel er bakvörður og kantmaður sem skoraði sex mörk í tíu leikjum í fyrra og Fijad er sóknarsinnaður miðjumaður sem skoraði tólf mörk í níu leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.