03.04.13 - 16:37
Magnús Már Einarsson
Hannes Þ. Sigurðsson til Mjallby (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Hannes Þ. Sigurðsson hefur samið við sænska félagið Mjallby en samningurinn gildir til 31. júlí næstkomandi.
Félagaskiptaglugginn í Svíþjóð lokaði í gær en Mjallby reiknar með að Hannes fái leikheimild með liðinu þrátt fyrir að ekki sé búið að klára pappírsvinnuna í kringum félagaskiptin.
Sænska knattspyrnusambandið og FIFA eru með málið í höndunum en Mjallby vonar að Hannes verði með liðinu gegn Djurgarden á mánudag.
Hannes hefur verið án félags síðan hann fór frá Atyrau í Kasakstan í lok síðasta árs.
Í febrúar var Hannes nálægt því að semja við Inverness í Skotlandi en meiðsli komu í veg fyrir samninga.
Hannes þekkir til í Svíþjóð eftir að hafa leikið með GIF Sundsvall frá 2008 til 2011. Hann hefur einnig leikið með Viking, Stoke, Bröndby, Spartak Nalchik og Atyrau á atvinnumannaferli sínum.

Heimild: Heimasíða Mjallby