Fotbolti.net
03.04.14 - 16:52
Elvar Geir Magnússon

Jón Gísli Ström kominn heim í ÍR (Staðfest)

Jón Gísli Ström í leik með ÍR.

Jón Gísli Ström í leik með ÍR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Jón Gísli Ström er kominn heim í uppeldisfélag sitt ÍR frá ÍBV. Þetta staðfesti Arnar Þór Valsson, þjálfari ÍR, í samtali við Fótbolta.net.
ÍR-ingar hafa verið flottir á undirbúningstímabilinu og verða að öllum líkindum í toppbaráttu 2. deildarinnar á komandi sumri.

Jón Gísli gekk í raðir ÍBV fyrir ári síðan en meiðsli settu strik í reikninginn. Var hann lánaður aftur til ÍR þar sem hann skoraði sjö mörk í tíu leikjum í 2. deildinni.

Hann er fæddur 1993 og kom við sögu í þremur leikjum með ÍBV í Pepsi-deildinni síðasta sumar. Hann er nú laus allra mála hjá Eyjaliðinu og mættur aftur heim.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.