03.04.14 - 15:43
Magnús Már Einarsson
Sindri Snær í KR (Staðfest)

Sindri Snær og Peter Schmeichel á góðum degi. Sindri vann boladaginn á Twitter í fyrra.

Mynd: Twitter

Markvörðurinn Sindri Snær Jensson hefur gengið til liðs við Íslandsmeistara KR.
Markverðirnir Hannes Þór Halldórsson og Rúnar Alex Rúnarsson fóru frá KR í vetur en þeir héldu báðir út í atvinnumennsku. Hannes fór til Sandnes Ulf í Noregi en Rúnar Alex til Nordsjælland í Danmörku.
Stefán Logi Magnússon kom til KR á dögunum og Sindri Snær mun nú berjast við hann um markvarðarstöðuna.
Sindri Snær er 27 ára gamall en hann er uppalinn hjá Þrótti. 2011 og 2012 var Sindri á mála hjá Val en síðara árið var hann aðalmarkvörður félagsins.
Í kjölfarið flutti Sindri erlendis en hann tók sér frí frá fótbolta í fyrra.
Sjá einnig:
Smelltu hér til að sjá pistla Sindra á Fótbolta.net

Heimild: Heimasíða KR