Fotbolti.net
03.04.14 - 11:52
Elvar Geir Magnússon

Stuart Pearce mun taka við Forest (Staðfest)

Stuart Pearce mun taka við Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nottingham Forest hefur staðfest að Stuart Pearce mun taka við sem knattspyrnustjóri frá og með 1. júlí. Pearce var fyrirliði Forest á sínum tíma en hann þjálfaði síðast U21-landslið Englands.
Forest er í sjöunda sæti Championship-deildarinnar og á enn möguleika á að komast í umspil um sæti í úrvalsdeildinni.

Félagið hefur leitað að nýjum stjóra síðan Billy Davies var rekinn 24. mars eftir að liðið hafði leikið átta leiki í röð án sigurs, þar á meðal var niðurlægjandi 5-0 tap fyrir erkifjendunum í Derby.

Pearce er 51 árs og var tólf ár hjá Forest sem leikmaður en Gary Brazil mun stýra liðinu út tímabilið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.