Fotbolti.net
03.04.17 - 11:48
Magnús Már Einarsson

Stjarnan fær leikjahæsta leikmann Skota (Staðfest)

Stjarnan fær leikjahæsta leikmann Skota (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Skoski markvörðurinn Gemma Fay hefur gengið til liðs við Stjörnuna fyrir Pepsi-deildina í sumar.

Hin 35 ára gamla Gemma hefur gríðarlega reynslu en hún er leikjahæst í skoska landsliðinu frá upphafi með 197 leiki!
Gemma varði mark Skota í báðum leikjunum gegn Íslandi í undankeppni EM og hún verður sjálf í eldlínunni í lokakeppninni í Frakklandi í sumar.

Berglind Hrund Jónasdóttir varði mark Stjörnunnar í fyrra en hún fær núna alvöru samkeppni.

Gemma spilaði síðast með Glasgow City í skosku úrvalsdeildinni en hún hefur einnig leikið með liðum eins og Brighton & Hove Albion, Hibernian, Leeds og Celtic.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.