Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 03. apríl 2020 09:20
Magnús Már Einarsson
Vinnuhópur skipaður til að vinna úr útfærslum á fjárframlagi ríkisins
Guðrún Inga Sívertsen leiðir vinnuhópinn.
Guðrún Inga Sívertsen leiðir vinnuhópinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur skipað þriggja manna vinnuhóp til að vinna tillögur að útfærslum á fjárframlagi sem mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að veita íþróttastarfi vegna kórónuveirunnar.

Mennta- og menningarmálaráðherra tilkynnti á dögunum að einum milljarð yrði veitt til menninga, lista og íþrótta.

Ljóst er að rekstur margra íþróttafélaga er þungur þessa dagana en vinnuhópurinn mun nú fara yfir hvernig eigi að nota þann pening sem íþróttahreyfingin fær.

Af vef ÍSÍ
Fram hefur komið, bæði í fréttum fjölmiðla og einnig í samtölum forystu ÍSÍ við mennta- og menningarmálaráðuneytið og ráðherra, að mennta- og menningarmálaráðherra áætlar að veita umtalsvert fjárframlag til íþróttahreyfingarinnar til að koma til móts við þann kostnað sem hreyfingin, bæði sambönd og félög/deildir, hefur orðið fyrir og mun verða fyrir vegna COVID-19 veirunnar. Frumvarpið var samþykkt 30. mars sl. en beðið er formlegra upplýsinga frá ráðuneytinu um upphæð fjárstyrksins sem renna mun til íþróttamála.

Aðferðarfræðin við dreifingu þessa fjárframlags liggur ekki ljós fyrir þessa stundina en framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur skipað þriggja manna vinnuhóp til að vinna tillögur að útfærslum. Guðrún Inga Sívertsen, fyrrverandi varaformaður KSÍ mun leiða hópinn og með henni verða Hörður Þorsteinsson formaður Badmintonfélags Hafnarfjarðar og fyrrverandi framkvæmdastjóri GSÍ og Sigurjón Pétursson varaforseti Alþjóðakraftlyftingasambandsins sem einnig er fyrrum formaður KRAFT og fyrrum varaformaður HSÍ. Öll búa þau yfir yfirgripsmikilli þekkingu á íþróttahreyfingunni. Einnig er gert ráð fyrir því að fulltrúar stjórna ÍSÍ og UMFÍ muni leggja vinnuhópnum lið eftir þörfum sem og aðrir þeir sem vinnuhópurinn telur þurfa koma að verki. Vinnuhópurinn hefur þegar hafið störf.

Áætlað er að vinna málin hratt um leið og fyrir liggur formleg tilkynning varðandi fjárframlagið frá ríkinu.Vonast er til að fjárstuðningur ríkisins við íþróttahreyfinguna og þau önnur úrræði sem þegar hafa verið boðuð, til dæmis varðandi rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli, muni hjálpa til í rekstri eininga innan vébanda ÍSÍ.
Athugasemdir
banner
banner
banner