Fotbolti.net
03.04.22 - 11:00
Aksentije Milisic

Þrír erlendir leikmenn í KF (Staðfest)

Cameron í baráttunni síðasta sumar.

Cameron í baráttunni síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Knattspyrnufélag Fjallabyggðar, sem leikur í 2. deild í sumar, hefur verið að styrkja sig fyrir átökin og í gær sömdu þrír erlendir leikmenn við félagið.

Í fyrra hafnaði liðið í 5. sæti í 2. deildinni en það er besti árangur liðsins síðan árið 2013 en þá var liðið í næst efstu deild.

Liðið hefur misst sterka pósta frá síðasta sumri en nú er verið að spýta í. Leikmennirnir sem eru mættir heita Julio Cesar Fernandes, Symon Fabbricatore og Cameron Botes.

Julio er lítill og teknískur framherji sem kemur frá Brasilíu og er 25 ára gamall. KF hefur sárvantað framherja eftir að Sachem Wilson og Oumar Diouck yfirgáfu liðið.

Symon Fabbricatore kemur frá Bandaríkjunum en hann getur leyst af nokkrar stöður á vellinum.

Cameron kannast menn í Fjallabyggðinni vel við en hann spilaði með liðinu í fyrra og stóð sig mjög vel í hjarta varnarinnar. Óvissa var með framtíð hans en nú er klárt að hann mun taka slaginn aftur með KF.

Slobodan Milisic er áfram þjálfari liðsins en hann er nú á leiðinni í sitt sjötta tímabil með félagið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.