Fotbolti.net
03.05.17 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Daníel Gylfa í Víði Garði (Staðfest)

Daníel Gylfason.

Daníel Gylfason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net

Víðir Garði hefur fengið kantmanninn Daníel Gylfason til liðs við sig fyrir átökin í 2. deildinni í sumar.
Daníel kemur til Víðis frá uppeldisfélagi sínu Keflavík.

Árið 2015 spilaði Daníel tíu leiki með Keflavík í Pepsi-deildinni en í fyrra lék hann fjóra leiki með liðinu í Inkasso-deildinni.

Víðir Garði fór upp úr 3. deildinni í fyrra en liðið lagði í gær Njarðvík 1-0 í úrslitaleik B-deildar Lengjubikarsins.

Fyrsti leikur Víðis í 2. deildinni er á laugardaginn þegar liðið fær Hött í heimsókn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.