Fotbolti.net
03.05.17 - 13:49
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Goðsögnin Totti hættir eftir tímabilið (Staðfest)

Totti er að hætta.

Totti er að hætta.

Canon

Mynd: Getty Images

Roma hefur staðfest að goðsögnin Francesco Totti muni leggja skóna á hilluna eftir tímabilið, 24 árum eftir að hann lék sinn fyrsta leik fyrir félagið.

Totti er 40 ára og hefur spilað yfir 600 leiki fyrir Roma síðan hann lék sinn fyrsta leik 1993.

Hann hefur aðeins byrjað einn leik í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili undir stjórn Luciano Spalletti.
Líklegt er að Totti muni starfa fyrir Roma eftir að skórnir fara á hilluna.

Monchi, nýr yfirmaður íþróttamála hjá Roma, hafði þetta að segja:

„Francesco er Roma. Ég vil vera eins nálægt honum og hægt er. Ég myndi elska að læra allavega 1% af því sem sem hann veit.\"

Síðasti leikur Totti verður sunnudaginn 28. maí gegn Genoa á Ólympíuleikvanginum. Hann hefur unnið tvo ítalska meistaratitla og ítalska bikarinn á 24 árum sínum með Roma.

Hann lék fyrir ítalska landsliðið en lagði landsliðsskóna á hilluna eftir að hafa unnið HM 2006.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.