03.05.17 - 07:30
Stefnir Stefánsson
Petar Mudresa í Hött (Staðfest)

Úr leik Hattar og ÍR

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Úr leik Hattar og ÍR

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Höttur er að styrkja sig enn frekar fyrir sumarið en félagið hefur fengið til sín 32 ára gamlan serbneskan miðvörð að nafni Petar Mudresa.
Mudresa á að baki fjöldan allan af leikjum úr atvinnumennsku en síðast lék hann með CSK Celarevo í Serbíu. Hann á leiki að baki í úrvalsdeildinni í Bosníu og Albönsku úrvalsdeildinni einnig.
Höttur bindur miklar vonir við Petar sem er stór og stæðilegur miðvörður sem mun koma til með að hjálpa Hetti í baráttunni í sumar.
Hetti er spáð tíunda sæti í 2. deildinni í sumar í spá fyrirliða og þjálfara og spurning er hvort að Petar geti hjálpað liðinu að halda sæti sínu í deildinni í sumar.

Höttur mætir Víði Garði í fyrstu umferðinni í 2. deildinni um helgina.