03.05.22 - 19:51
Brynjar Ingi Erluson
Fram fær fyrrum landsliðskonu Úkraínu í Futsal (Staðfest)

Mynd: Fram

Mynd: Fram

Kvennalið Fram hefur styrkt sig fyrir komandi átök í sumar og fengið til liðs við sig Iryna Maiborodina frá Úkraínu.
Irina er 28 ára gömul og spilar sem sóknarsinnaður miðjumaður en hún kemur frá úkraínska félaginu Kolos Kovalivka.
Hún hefur mikla boltatækni og er með öflugan vinstri fót en hún spilaði á sínum tíma með landsliði Úkraínu í Futsal.
Irina mun færa liðinu mikla reynslu en hún verður klár í slaginn með liðinu fyrir fyrsta leik í 2. deildinni þann 18. maí er liðið spilar við KÁ á Ásvöllum.