03.05.22 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Grindavík fær Örvar frá Stjörnunni (Staðfest)

Mynd: Grindavík

Mynd: Grindavík

Grindavík hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni því Örvar Logi Örvarsson er genginn í raðir félagsins á láni frá Stjörnunni.
Örvar er á nítjánda aldursári og leikur stöðu vinstri bakvarðar.

Örvar lék með KFG á síðstu leiktíð í 3. deildinni og kom við sögu hjá Stjörnunni á undirbúningstímabilinu. Örvar lék æfingaleik með Grindavík síðastliðinn föstudag í sigri gegn Reyni Sandgerði og stóð sig vel.
„Ég er ánægður með að fá Örvar til liðs við okkur. Þetta er ungur og spennandi leikmaður sem jafnframt býr yfir mikilli hlaupagetu,“ segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Grindavíkur, um komu Örvars.
Örvar verður kominn með leikheimild fyrir fyrsta leik Grindavíkur í Lengjudeildinni á föstudag gegn Aftureldingu.