03.05.22 - 17:15
Elvar Geir Magnússon
Jón Jökull lánaður í Þrótt Vogum (Staðfest)

Jón Jökull í treyju Þróttara.

Mynd: Þróttur Vogum

Jón Jökull í treyju Þróttara.

Mynd: Þróttur Vogum

Jón Jökull Hjaltason var rétt í þessu að skrifa undir lánssamning við Þrótt Vogum en hann kemur frá ÍBV.
Hann spilaði í sigri Þróttar í æfingaleik á móti Haukum á föstudaginn síðasta.
Jón Jökull, sem er 21 árs miðjumaður, hefur spilað 28 leiki fyrir ÍBV og skorað í þeim tvö mörk. Hann lék 18 leiki í Lengjudeildinni síðasta sumar þegar ÍBV tryggði sæti sitt í efstu deild. Jón hafði leikið með unglingaliði AGF áður en hann kom til ÍBV 2020.

Hermann Hreiðarsson, fyrrum þjálfari Þróttar Vogum, er þjálfari ÍBV í dag eins og flestir lesendur vita.
Þróttur Vogum er nýliði í Lengjudeildinni og fær Fjölni í heimsókn í fyrstu umferðinni á föstudagskvöld.
Sjá einnig:
12. sæti í spá Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina: Þróttur V.