Fotbolti.net
03.05.22 - 19:20
Brynjar Ingi Erluson

Ronaldo: Ég sagði þetta ekki

Cristiano Ronaldo

Cristiano Ronaldo

Canon

Mynd: Getty Images

Portúgalski fótboltamaðurinn Cristiano Ronaldo vildi leiðrétta misskilning um það sem hann sagði í myndavélina eftir 3-0 sigurinn á Brentford í gær.
Ronaldo skoraði 18. deildarmark sitt á tímabilinu með Manchester United í gær í síðasta heimaleik deildarinnar.

Eftir leik kom myndatökumaður upp að honum og fylgdi honum á eftir á meðan hann gekk um völlinn.

Það leit út í fyrstu að hann hafi sagt við myndavélina að hann væri ekki búinn en það er víst ekki það sem hann meinti.

Ronaldo skildi eftir ummæli á stuðningsmannasíðu leikmannsins á Instagram og sagði að ummælin væru röng.

„Ég sagði þetta ekki," sagði Ronaldo.

Netverjar hafa velt því fyrir sér hvað hann sagði í raun og veru en flestir eru á því að hann hafi einfaldlega verið að biðja myndatökumanninn um að hætta að mynda hann og að þetta væri komið gott.

Ronaldo við myndavélina: Ég er ekki búinn
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.