Fotbolti.net
03.05.22 - 10:54
Elvar Geir Magnússon

Skagafréttir sanna að boltinn fór inn

Boltinn var allur kominn inn.

Boltinn var allur kominn inn.

Canon

Mynd: Skagafréttir

Fram og ÍA gerðu 1-1 jafntefli í Safamýri í gær í 3. umferð Bestu deildarinnar. Eyþór Wöhler skoraði jöfnunarmark ÍA en sumir voru í vafa um að boltinn hefði farið allur innfyrir marklínuna.

En myndir frá Skagafréttum sýna það og sanna að aðstoðardómari leiksins, Bergur Daði Ágústsson, hafði rétt fyrir sér þegar hann dæmdi markið gott og gilt.
„Kaj Leó með hornspyrnu, boltinn dettur fyrir Whöler sem skallar hann í átt að marki, en boltanum er skotið í burtu úr markinu, hann sýndist ekki vera inni en Elías Ingi dæmdi mark. Framarar mótmæltu ekki dómnum og Skagamenn fögnuðu en séð úr blaðamannastúku var þetta tæpt," skrifaði Matthías Freyr Matthíasson í textalýsingu frá leiknum.

Hér má sjá myndasyrpu frá Skagafréttum sem sýnir augljóslega að um réttan dóm var að ræða.

Sjá einnig:
Sjáðu mörkin úr leikjunum í gær
Eyþór Wöhler fagnar eftir að hafa jafnað fyrir ÍA.

Eyþór Wöhler fagnar eftir að hafa jafnað fyrir ÍA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.