03.06.13 - 14:18
Elvar Geir Magnússon
Rikki Daða nýr þjálfari Fram (Staðfest)
Auðun Helgason aðstoðarmaður

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ríkharður Daðason er nýr þjálfari Fram og tekur við af Þorvaldi Örlygssyni sem fór fram á að vera leystur frá störfum. Þetta kemur fram á heimasíðu Fram en þar er einnig sagt að Auðun Helgason verði aðstoðarmaður hans. Þeir eru ráðnir út tímabilið.
Ríkharður er fæddur 1972 og er fyrrum leikmaður og stjórnarmaður hjá Fram. Hann lék á sínum tíma 44 A-landsleiki og var mörg ár í atvinnumennsku; lék í Noregi, Grikklandi og með Stoke í enska boltanum.

Nafn hans kom fljótlega inn í umræðuna eftir að ljóst var að Þorvaldur væri hættur með liðið.
Sumarið 2011 var Ríkharður Þorvaldi innan handar og aðstoðaði við þjálfun sóknarmanna liðsins þegar hann var að mennta sig í þjálfun.
Auðun á að baki langan og farsælan feril sem leikmaður í Noregi, Svíþjóð, Sviss og Belgíu auk Íslands þar sem hann lék m.a. með Fram 2008 og 2009. Auðun Helgason lék 35 landsleiki fyrir Ísland.
Framarar eru sem stendur með fimm stig í áttunda sæti Pepsi-deildarinnar þegar fimm umferðum er lokið. Fyrsti leikur liðsins undir stjórn Ríkharðs verður gegn Keflavík á mánudaginn eftir viku.

Ríkharður í leik með Fram á sínum tíma.

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson