03.06.13 - 22:00
Daníel Freyr Jónsson
Roberto Carlos tekinn við tyrknesku liði (Staðfest)

Roberto Carlos.

Mynd: Getty Images

Roberto Carlos.

Mynd: Getty Images
Roberto Carlos, fyrrum leikmaður Real Madrid, hefur verið ráðinn sem stjóri Sivasspor í Tyrklandi.
Þessi 40 ára gamli brasilíumaður skriaði undir tveggja ára samning, hann þekkir ágætlega til í Tyrklandi eftir að hafa leikið með Fenerbahce um skeið.
Hann lagði skóna á hilluna á síðasta ári eftir að hafa stýrt liði Anzhi Makhachkala í Rússlandi tímabundið. Síðan þá hefur hann verið hægri hönd Guus Hiddink hjá Anzhi.
,,Þetta er einn mikivlægasti dagurinn í mínu lífi. Ég er ánægður með að vera hér og ég vill þakka forsetanum fyrir að gefa mér þetta tækifæri,\" sagði Carlos eftir ráðninguna.
Carlos, sem á sínum ferli lék einnig með Inter Milan, Corinthians og Palmeiras, er einn sigursælasti bakvörður seinni tíma. Hann vann Meistaradeild Evrópu þrisvar, spænsku úrvalsdeildina fjórum sinnum, auk þess sem hann varð heimsmeistari með Brasilíu árið 2002.