03.06.14 - 11:00
Fótbolti.net
Uppgjör umferðarinnar - Kvaddi að hætti Benítez

Aðhlynning á Vodafone-vellinum.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Búningurinn sem Gunnleifur Gunnleifsson lék í.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Orri Björnsson horfði á sína menn í Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

#TakkÓli

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðhlynning á Vodafone-vellinum.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Líkt og síðustu ár gerir Fótbolti.net upp umferðir Pepsi-deildarinnar á skemmtilegan hátt. Þetta er allt til gamans gert. Hér að neðan má sjá punkta úr 6. umferðinni sem var leikin á sunnudag og mánudag.
Leikur umferðarinnar: KR 3 - 2 Fram
Reykjavíkurslagur af bestu gerð. Fullt af færum, umdeild atvik, mikil harka og þrumustuð. Völlurinn tættist vel upp í látunum og stemningin minnti um margt á alvöru enskan neðri-deildarslag. Framarar voru flottir en fóru súrir heim eftir kaflaskiptan leik þar sem KR skoraði sigurmarkið eftir vítaspyrnu.
Þjálfari umferðarinnar: Ágúst Gylfason (Fjölnir)
Það er ekki oft sem þjálfari umferðarinnar kemur frá liði sem vann ekki í umferðinni. Fjölnir gerði jafntefli við Keflavík og Ágúst fær þessa nafnbót þar sem nýliðarnir eru án ósigurs að loknum sex umferðum.
Mark umferðarinnar: Niclas Vemmelund (Stjarnan)
Það hefur aldrei verið eins auðvelt að velja mark umferðarinnar (Staðfest). Vemmelund átti þrumufleyg sem söng í netinu eftir frábæran undirbúning Veigars Páls Gunnarssonar sem dansaði með knöttinn. Þvílíkt mark!
Ekki lið umferðarinnar:
Bjarni Þórður Halldórsson (Fylkir)
Orri Hjaltalín (Þór) - Ivar Furu (KR) - Jordan Halsman (Breiðablik)
Illugi Gunnarsson (Fjölnir)
Dean Martin (ÍBV) - Olgeir Sigurgeirsson (Breiðablik) - Arnþór Ingi Kristinsson (Víkingur) - Andrew Sousa (Fylkir)
Ryan Maduro (Fylkir) - Magnús Þorsteinsson (Keflavík)
Búningur umferðarinnar: Gunnleifur Gunnleifsson
Gulli var í ansi litríkri markmannstreyju þegar Breiðablik gerði 1-1 jafntefli við Stjörnuna eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Dómari umferðarinnar: Ívar Orri Kristjánsson
Yngsti dómari deildarinnar stóð sig vel með flautuna þegar Valur og Fylkir áttust við.
Vafaatriði umferðarinnar: Rautt spjald Dean Martin
Vandræðagangur Eyjamanna heldur áfram. Þeir fengu á sig mark í blálokin gegn Þór og jafntefli niðurstaðan. Stóran hluta leiksins þurfti ÍBV að leika manni færri eftir að Erlendur Eiríksson gaf Dean Martin rautt spjald fyrir olnbogaskot. Okkar mat miðað við myndbandsupptöku: Dómurinn alltof strangur.
Markaþurrð umferðarinnar: FH
Það er kannski furðulegt þegar talað er um topplið deildarinnar... en meira bit vantar í sóknarleik FH. Liðið hefur aðeins skorað meira en eitt mark í einum leik það sem af er tímabili. Ansi óvanalagt þegar FH er annars vegar. Vörnin og markvarslan þó í himnalagi!
Kveðjustund umferðarinnar: Ólafur Kristjánsson
Ólafur stýrði Blikum í síðasta sinn þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Stjörnunni. Eftir leik fékk Ólafur gott lófaklapp úr stúkunni, blómvönd og faðmlög frá leikmönnum sínum enda gert frábæra hluti með Kópavogsliðið. Ólafur er að fara að taka við þjálfun Nordsjælland í Danmörku! Gangi þér vel Óli!
Benítez umferðarinnar: Ólafur Kristjánsson
„Faktað er að ég var með liðið fyrstu sex leikina. Faktað er að ég er að fara. Faktað er að stjórnin tók ákvörðun um þetta og auðvitað held ég áfram ef ég er beðinn um það. Faktað er að liðið er á þeim stað sem liðið er og menn verða bara að spýta í lófana,\" sagði Ólafur í viðtali eftir leik en hann náði ekki að kveðja Blika með sigri. Viðtalið þótti minna á frægt viðtal Benítez...