Frosti Brynjólfsson er genginn í raðir Magna frá uppeldisfélagi sínu KA.
Hann lék sína fyrstu mótsleiki með Magna sumarið 2016 en lék svo fimm leiki með KA í Pepsi-deildinni sumarið 2018.
Hann lék sína fyrstu mótsleiki með Magna sumarið 2016 en lék svo fimm leiki með KA í Pepsi-deildinni sumarið 2018.
Í fyrra var hann lánaður til Magna og lék fjórtán leiki í 1. deildinni. Nú hefur hann skipt yfir alfarið.
Frosti varð tvítugur í apríl og getur hann leyst báðar vængstöðurnar.
Fyrsti leikur Magna í Lengjudeildinni verður gegn ÍBV í Eyjum þann 20. júní.
Athugasemdir