ÍR hefur fengið þá Gylfa Stein Guðmundsson og Ísak Óla Helgason til liðs við sig fyrir 2. deildina í sumar.
Gylfi Steinn gengur nú til liðs við ÍR eftir að hafa verið í láni frá Haukum á síðasta tímabili.
Ísak Óli snýr nú aftur á heimaslóðir en hann lék með ÍR upp í 3.flokk áður en hann fór í HK og síðar Fjölni. Hann spilaði með Fjölni í Pepsi-deildinni 2018 og í 1.deildinni í fyrra.
„Við hlökkum mikið til að sjá strákana í búningnum fallega og væntum mikils af þeim í sumar," segir í tilkynningu frá ÍR.
ÍR hefur leik í 2. deildinni gegn KF laugardaginn 20. júní.
Athugasemdir