03.07.13 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Cassano kominn til Parma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Antonio Cassano er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við ítalska efstudeildarfélagið Parma.
Cassano hefur áður leikið með Bari, Roma, Real Madrid, Sampdoria, AC Milan og kemur nú til Parma frá Inter.

Cassano verður kynntur opinberlega á fimmtudaginn og fær hann treyju númer 99 hjá félaginu.
,,Það er ánægjulegt fyrir okkur að bjóða Antonio Cassano velkominn í gulbláu fjölskylduna,\" stendur í yfirlýsingu á vefsíðu félagsins.
Búist er við að Ishak Belfodil fari til Inter í staðinn fyrir Cassano, en Inter mun þurfa að greiða um 10 milljónir evra með sóknarmanninum.

Heimild: Sporting Life