Fotbolti.net
03.07.13 - 15:07
Elvar Geir Magnússon

Jonjo Shelvey í Swansea (Staðfest)

Jonjo Shelvey í Swansea (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Búið er að ganga frá kaupum Swansea á Jonjo Shelvey frá Liverpool fyrir tæplega sex milljónir punda.

Þessi 21 árs miðjumaður kom til Liverpool frá Charlton 2010 en hann á einn A-landsleik að baki fyrir England og hefur leikið fyrir öll yngri landsliðin.
Shelvey var hjá unglingaliðum Arsenal og West Ham áður en hann fór til Charlton.

Á síðasta tímabili lék hann 32 leiki fyrir Liverpool undir stjórn Brendan Rodgers og afrekaði það að skora fjögur mörk í tíu leikjum í Evrópudeildinni.

Shelvey mun halda til Hollands þar sem Swansea er í æfingaferð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.