Fotbolti.net
03.07.13 - 20:11
Ívan Guðjón Baldursson

Vaughan til Huddersfield (Staðfest)

Vaughan til Huddersfield (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

James Vaughan er kominn til Huddersfield frá Norwich eftir að hafa skorað 14 mörk í 37 leikjum sem lánsmaður hjá Championship félaginu.

Vaughan er 24 ára gamall sóknarmaður og er búinn að skrifa undir þriggja ára samning. Kaupverð er óuppgefið.
,,Koma James er mjög stór fyrir okkur sem félag,\" sagði Mark Robins, knattspyrnustjóri Huddersfield.

,,Ég veit að stuðningsmenn okkar verða ánægðir eftir þessi kaup. James átti frábært tímabil hér á láni.

,,Hann er bara 24 ára og er þegar mjög sterkur, hraður, vinnusamur og meira. Hann skilur hvernig við spilum og mun hjálpa okkur að ná markmiðum okkar.\"


Vaughan hóf atvinnumannaferil sinn hjá Everton þar sem hann skoraði 9 mörk í 49 leikjum.

Hann var lánaður til Derby, Leicester og Crystal Palace áður en hann var keyptur til Norwich City.

Hann var valinn besti leikmaður tímabilsins af stuðningsmönnum Huddersfield á síðasta tímabili.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.