Fotbolti.net
03.07.13 - 14:28
Magnús Már Einarsson

Vito Mannone til Sunderland (Staðfest)

Vito Mannone til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur keypt markvörðinn Vito Mannone frá Arsenal en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Hinn 25 ára gamli Mannone skrifaði undir tveggja ára samning hjá Paolo Di Canio og félögum.
Mannone á að fylla skarð Simon Mignolet sem gekk í raðir Liverpool á dögunum.

Mannone kom til Arsenal árið 2005 en lék einungis 15 leiki með félaginu á tíma sínum þar. Hann lék einnig með Barnsley og Hull á láni.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.