Fotbolti.net
03.07.14 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Emre Can til Liverpool (Staðfest)

Emre Can.

Emre Can.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Emre Can en hann kemur frá Bayer Leverkusen á tíu milljónir punda.

Liverpool hafði náð samkomulagi um kaupin fyrir mánuði síðan en bíða þurfti til 1. júlí til að ganga frá pappírsvinnu.
,,Liverpool er frábært félag og stuðningsmennirnir eru á meðal þeirra bestu í heimi. Ég hlakka til fyrsta leiks og get ekki beðið eftir að fara út á Anfield í fyrsta skipti,\" sagði Can.

,,Ég er stoltur af því að vera hluti af þessari fjölskyldu og hlakka til að spila hér. Ég mun gera mitt besta.\"

Can er þriðji leikmaðurinn sem Liverpool fær í sumar á eftir Rickie Lambert og Adam Lallana sem komu frá Southampon.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.