03.07.14 - 11:30
Daníel Freyr Jónsson
Skoski Messi samdi við Sporting Lissabon (Staðfest)

Ryan Gauld.

Mynd: Getty Images

Ryan Gauld.

Mynd: Getty Images
Skoska undrabarnið Ryan Gauld er genginn í raðir portúgalska félagsins Sporting Lissabon frá Dundee United í heimalandi sínu.
Gauld er einungis 18 ára gamall en hefur þegar verið titlaður sem hinn næsti Messi. Sló hann í gegn með Dundee í vetur eftir að hafa stigið sín fyrstu skref með aðalliðinu leiktíðina 2011-12.
Sporting greiðir þrjár milljónir punda fyrir Gauld, sem skoraði sex mörk í 31 deildarleik í vetur.
Gauld skrifaði undir sex ára samning hjá Sporting. Í samningnum er klásúla um að hann geti farið frá félaginu fyrir 60 milljónir evra.