03.07.14 - 19:39
Hafliði Breiðfjörð
Þór Hinriksson tekur við Val - Edda áfram (Staðfest)

Þór Hinriksson er nýr þjálfari kvennaliðs Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór Hinriksson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Vals en hann tekur við starfinu af Helenu Ólafsdóttur sem hætti með liðið í gær.
Edda Garðarsdóttir sem var aðstoðarmaður Helenu með liðið verður áfram í sinni stöðu og aðstoðar Þór með liðið.
Þór hefur að undanförnu verið að þjálfa hjá 2. flokki kvenna hjá Val og stýrði meistaraflokki í einhverjum leikjum í vetur þegar Helena var í fríi.

Þór hefur víðtæka reynslu af þjálfun hjá Val sem og annarsstaðar og var hann m.a. aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Val þegar liðið varð bikarmeistari 2005 og Íslandsmeistari 2007 og síðar aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar í Keflavík.
Hann hefur sótt menntun bæði hér heima og í Hollandi og starfaði um tíma hjá akademíu hollenska liðsins Heracles Almelo.