03.07.16 - 13:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Grzegorz Krychowiak til PSG (Staðfest)

Krychowiak verður áfram í Frakklandi eftir EM

Mynd: Getty Images

Franska stórliðið Paris Saint-Germain er búið að festa á kaup á miðjumanninum Grzegorz Krychowiak frá Sevilla.
Krychowiak skrifaði undir fimm ára samning við PSG, en þar mun hann hitta fyrir Unai Emery, sinn fyrrum stjóra hjá Sevilla.

Hann er annar leikmaðurinn sem PSG fær til sín í sumar, en áður hafði félagið samið við Hatem Ben Arfa.
Unai Emery tók við PSG á dögunum og er aðalatriðið að vinna Meistaradeild Evrópu og Krychowiak hefur verið lykilmaður í sigrum Sevilla í Evrópudeildinni.
Samkvæmt spænsku fjölmiðlum er kaupverðið á Krychowiak talið vera í kringum 26 milljónir evra.
„Það er mikið stolt sem fylgir því að koma til Frakklands og klæðast treyju hjá eins metnaðarfullu liði og Paris SG,\" sagði Krychowiak sem spilaði á EM í Frakklandi með Póllandi.
„Að vinna aftur með Unai Emery átti náttúrulega stóran þátt í ákvörðun minni. Ég kem til Parísar með sterkar tilfinningar og til þess að vinna eins marga titila og mögulegt er.\"

Nowy etap - PSG 2021! pic.twitter.com/lkPPJ0feLg
— Grzegorz Krychowiak (@GrzegKrychowiak) July 3, 2016
Heimild: Sky Sports