03.07.16 - 14:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Michy Batshuayi til Chelsea (Staðfest)

Batshuayi er mættur til Chelsea

Mynd: Heimasíða Chelsea

Batshuayi er mættur til Chelsea

Mynd: Heimasíða Chelsea
Belgíski landsliðsmaðurinn Michy Batshuayi er genginn í raðir Chelsea frá Marseille í Frakklandi.
Þessi 22 ára gamli sóknarmaður skrifaði undir fimm ára samning við Lundúnarliðið.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Antonio Conte kaupir til Chelsea, en talið er að hann muni kosta 33 milljónir punda.
„Ég er gríðarlega ánægður með að semja við eitt stærsta félag Evrópu og hefja þennan næsta kafla á ferli mínum. Ég vona að ég geti hjálpað Chelsea að vinna marga titla á tíma mínum á Stamford Bridge,\" sagði Batshuayi.
„Eden Hazard og Thibaut Courtois hafa sagt mér marga góða hluti um félagið, og með komu Antonio Conte er það spennandi tími að verða leikmaður Cheslea.\"
„Þetta er frábært tækifæri fyrir mig og fjölskyldu mína, og ég hlakka til þess að spila í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.\"
Batshuayi skoraði 17 mörk fyrir Marseille í Ligue 1 í Frakklandi á síðasta tímabili og kom við sögu hjá Belgíu á EM, en Belgar duttu þar út gegn Wales í 8-liða úrslitum.

Heimild: Heimasíða Chelsea