03.07.16 - 12:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mikel Arteta í þjálfaralið Man. City (Staðfest)

Arteta verður hluti af þjálfaraliði Pep Guardiola

Mynd: Getty Images

Mikel Arteta, fyrrum miðjumaður Arsenal, verður hluti af þjálfaraliði Pep Guardiola hjá Manchester City.
Hinn 34 ára gamli Arteta lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil.
Arteta var í fimm ár í herbúðum Arsenal. Hann lék á þeim 150 leiki, skoraði 17 mörk og vann tvo FA-bikara.
„Ég hef alltaf haft áhuga á meira en að vera bara leikmaður,\" sagði Arteta og lýsti því að vinna með Guardiola sem „mögnuðu tækifæri.\"
Arteta hóf feril sinn hjá spænsku risunum í Barcelona og lék svo Paris Saint-Germain, Rangers og Real Socieadad áður en hann fór til Everton.
Þar var hann lykilmaður í sex ár áður en hann fór til Arsenal, þar sem hann var eins og áður segir í fimm ár. Hann lék sinn síðasta leik með liðinu gegn Aston Villa í maí.
Fyrsti leikur Guardiola með Man. City verður svo sannarlega ekki af verri gerðinni. Liðið mætir nágrönnunum í United í Kína þann 25. júlí.

Heimild: BBC