Fotbolti.net
03.07.16 - 11:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Nampalys Mendy til Leicester City (Staðfest)

Mendy hér í leik með franska U21 árs landsliðinu

Mendy hér í leik með franska U21 árs landsliðinu

Canon

Mynd: Getty Images

Ensku meistararnir í Leicester City eru búnir að festa kaup á franska miðjumanninum Nampalys Mendy.
Mendy kemur frá Nice í Frakklandi og skrifar undir fjögurra ára samning við Leicester. Kaupverðið er ekki gefið upp.

Hinn 24 ára gamli Mendy gekk til liðs við Nice árið 2013, en þar áður spilaði hann undir stjórn Claudio Ranieri, sem nú þjálfar Leicester, hjá Monaco.

Mendy er fjórði leikmaðurinn sem Leicester bætir við sig í sumar, en áður höfðu Ron-Robert Zieler og Luis Hernandez samið við félagið.

„Ég þekki stjórann, ég þekki hans hugarfar og veit hvernig hugmyndarfræði hans er,\" sagði Mendy. „Hann talar hreint og skýrt út og það er eitthvað sem ég kann vel við.\"

Það hafa verið dregin upp líkindi með Mendy og N´Golo Kante, sem keyptur var til Leicester síðasta sumar. Kante sló í gegn og hefur verið orðaður burt frá Leicester og því spurning hvort Mendy sé mættur til þess að leysa hann af hólmi.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.