Fotbolti.net
03.07.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Steven Fletcher í Sheffield Wednesday (Staðfest)

Fletcher er kominn til Sheffield Wednesday

Fletcher er kominn til Sheffield Wednesday

Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Steven Fletcher er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Sheffield Wednesday.
Sunderland ákvað að endurnýja ekki samning sinn við Fletcher og því kemur hann frítt til Wednesday.

Fletcher skoraði 23 mörk í 108 leikjum fyrir Sunderland, en hann gekk til liðs við félagið árið 2012 frá Wolves fyrir 12 milljónir punda.

Hann var á láni hjá Marseille í Frakklandi á síðasta tímabili og skoraði þar tvö mörk í 14 leikjum.

Fletcher mun leika í Championship-deildinni á næsta tímabili, en Sheffield Wednesday var hársbreidd frá því að komast upp í ensku úrvalsdeildina á tímabilinu sem var að líða.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.