Tveimur leikjum lauk rétt eftir klukkan níu í kvöld í 2. deild karla.
Þróttur Vogum tók á móti Haukum og ÍR fékk norðanmenn í Dalvík/Reyni í heimsókn.
Haukar unnu endurkomusigur gegn Þrótti þar sem Nikola Dejan Djuric svaraði marki Brynjars Jónassonar með tveimur mörkum.
Á Hertz-vellinum var alvöru fjör þar sem gestirnir í D/R komust í 1-4 áður en ÍR minnkaði muninn í 3-4 sem reyndust lokatölur leiksins.
Haukar eru á toppi deildarinnar með níu stig ásamt Kórdrengjum.

Þróttur V. 1 - 2 Haukar
1-0 Brynjar Jónasson ('18 )
1-1 Nikola Dejan Djuric ('23 )
1-2 Nikola Dejan Djuric ('37 )
Lestu um leikinn.
ÍR 3 - 4 Dalvík/Reynir
0-1 Viktor Daði Sævaldsson
1-1 Styrmir Erlendsson
1-2 Áki Sölvason
1-3 Sjálfsmark
1-4 Angantýr Máni Gautason
2-4 Viktor Örn Guðmundsson (víti)
3-4 Jónatan Hrjóbjartsson
Athugasemdir