Fotbolti.net
03.07.20 - 18:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Piers Morgan: Frábært - Seljum Özil og nýtum hans laun í Auba

Markavél, sá sneggsti til að skora fimmtíu mörk fyrir Arsenal.

Markavél, sá sneggsti til að skora fimmtíu mörk fyrir Arsenal.

Canon

Mynd: Getty Images

Pierre-Emerick Aubameyang, framherji og fyrirliði Arsenal, er á samning sem rennur út næsta sumar. Samningsviðræður um nýjan samning eru hafnar og er Aubameyang, samkvæmt heimildum ESPN í leit að þriggja ára samning í það minnsta.

Auba vill fá 250 þúsund pund í vikulaun en þetta herma heimildir James Olley blaðamanns hjá ESPN.
Enski fjölmiðlamaðurinn og stuðningsmaður Arsenal, Piers Morgan, lét í ljós skoðun sína á þessum fregnum í dag.

„Frábært. Svona gerir þú þetta Mikel Arteta (@m8arteta): seldu [Mesut] Özil til einhvers sem vill fá hann og gefðu hans laun til Aubameyang (@Aubameyang7). Einfalt," skrifar Morgan á Twitter.

Staða Mesut Özil hjá Arsenal hefur verið í óvissu í lengri tíma en hann hefur ekki spilað með Arsenal eftir Covid-hlé ef frá er talinn æfingaleikur gegn Brentford áður en deild og bikar fóru af stað. Hann var á bekknum gegn Southampton og Brighton en annars ekki verið í hóp.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.