Fotbolti.net
17.07.26 - 18:09
Kári Snorrason

Hefur mikinn áhuga á Vall en býst ekki við að fá hann

Jón Þór hefur mikið álit á Vall.

Jón Þór hefur mikið álit á Vall.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Johannes Vall, vinstri bakvörður ÍA, var á dögunum orðaður við Stjörnuna í Dr. Football.

Þjálfari Stjörnunnar, Jón Þór Hauksson, þekkir Vall vel en hann fékk hann til liðs við félagið hjá ÍA 2022. Þessi 33 ára gamli Svíi hefur spilað á Íslandi nú í fimm ár en hann var sóttur til Vals 2021.

Fótbolti.net ræddi við Jón Þór fyrr í dag og spurði hann út í Vall og hvort hann hefði áhuga á leikmanninum.
Stjarnan fengið tvo heim úr atvinnumennsku - „Öflugir menn sem styrkja klúbbinn“
TENGT EFNI

Stjarnan fengið tvo heim úr atvinnumennsku - „Öflugir menn sem styrkja klúbbinn“

„Það er leikmaður sem ég hef mikinn áhuga á, frábær leikmaður. Hann er hins vegar samningsbundinn öðru liði, er leikmaður ÍA. Ég fylgist náið með honum og óska honum alls hins besta. En hann er ekki á leið í Stjörnuna, ekki svo ég viti, en hann er frábær leikmaður engu að síður,“ sagði Jón Þór í samtali við Fótbolta.net fyrr í dag.

Óviss um hvort hægt sé að kalla Conteh til baka
Alpha Conteh hefur verið heitur að undanförnu með Keflavík. Hann var lánaður til Keflavíkur undir lok síðasta glugga en Jón Þór var spurður hvort það væri möguleiki á að kalla hann til baka.

„Það er lánssamningur sem er gerður áður en ég kom. Ég veit ekki nákvæmlega stöðuna á því. Við erum gríðarlega vel mannaðir sóknarlega og ég er hæstánægður með það úrval sóknarmanna sem við höfum um að ráða.“

„Ég á hins vegar eftir að kafa ofan í samninginn hjá Conteh. Hann hefur staðið sig frábærlega í Keflavík og er virkilega öflugur og spennandi leikmaður,“
sagði Jón Þór að lokum.
Tók við Stjörnunni í síðasta mánuði.

Tók við Stjörnunni í síðasta mánuði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Conteh verið frábær með Keflavík að undanförnu.

Conteh verið frábær með Keflavík að undanförnu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.19+4448
2KR19+2540
3Fram19+1340
4Breiðablik19+630
5ÍA19-425
6Keflavík19-425
7Valur19-523
8Stjarnan19-1221
9ÍBV19-1117
10FH19-1217
11KA19-1216
12Þór19-2815
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.