Völsungur fær spænskan markvörð (Staðfest) - Parla kominn með leikheimild

Sergio Parla

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sergio Parla

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Victor Mendez Exposito er genginn til liðs við Völsung. Hann er 26 ára gamall spænskur markvörður en hann hefur spilað í neðri deildunum á Spáni undanfarin ár.
Völsungur, sem situr í 11. sæti Lengjudeildarinnar, hefur verið í brasi með markmannsstöðuna í sumar. Jochum Magnússon meiddist í leik fyrr í þessum mánuði og Tómas Bjarni Baldursson, sem kann betur við sig framarlega á vellinum, fór í markið.
Þá hefur Sergio Parla fengið leikheimild og þeir verða væntanlega klárir í slaginn þegar liðið heimsækir Þrótt í dag.
Parla kom inn í þjálfarateymið með Borja Iglesias í maí en Parla þekkir vel til á Húsavík. Hann spilaði sjö leiki í 2. deild með liðinu árið 2024 og níu leiki í Lengjudeildinni í fyrra.