Fotbolti.net
17.07.26 - 21:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeild kvenna: KR hrökk í gang í lokin

Grótta og KR eru í tveimur efstu sætunum

Grótta og KR eru í tveimur efstu sætunum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kvennaboltinn
KR og Grótta fögnuðu sigrum í Lengjudeild kvenna í kvöld. KR fékk völsung í heimsókn.

Það var markalaust í hálfleik en Kara Guðmundsdóttir braut ísinn þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma.

Þórey Björk Eyþórsdóttir bætti öðru markinu við og Katla Guðmundsdóttir innsiglaði sigurinn í lokin.

Það var jafnt í hálfleik þegar HK fékk Gróttu í heimsókn. María Lovísa Jónasdóttir kom Gróttu yfir snemma í seinni hálfleik og Nicole Douglas innsiglaði sigurinn.

Grótta er á toppnum með 27 stig, KR í öðru sæti með 22 stig, HK er í 4. sæti með 14 stig og Völsungur er í 9. sæti með átta stig.
HK 1 - 3 Grótta
0-1 Lovísa Davíðsdóttir Scheving ('3 )
1-1 Kristín Sara Arnardóttir ('28 , sjálfsmark)
1-2 María Lovísa Jónasdóttir ('52 )
1-3 Nicole Douglas ('64 )

KR 3 - 0 Völsungur
1-0 Kara Guðmundsdóttir ('83 )
2-0 Þórey Björk Eyþórsdóttir ('87 )
3-0 Katla Guðmundsdóttir ('90 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Grótta14+2232
2KR13+1323
3HK14+523
4Selfoss13+722
5ÍA14+721
6Haukar13-321
7Keflavík13+917
8FHL13017
9Völsungur14-512
10Tindastóll13-553
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.