Harmar mistökin á Kópavogsvelli - „Enginn svekktari en dómararnir"

Þjálfari Keflavíkur fer yfir málin í hálfleik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við hörmum þessi mistök, það er enginn svekktari en dómararnir þegar svona gerist," segir Þóroddur Hjaltalín, dómarastjóri KSÍ, þegar hann er spurður út í markið sem fékk ekki að standa í leik Breiðabliks og Keflavíkur í Bestu deildinni á mánudag.
Keflavík leiddi 0-1 á Kópavogsvelli og virtist Marin Mudrazija vera að tvöfalda forystuna á 33. mínútu leiksins en flaggið fór á loft og rangstaða dæmd. Markið, sem var fullkomlega löglegt fékk ekki að standa. Arnar Þór Stefánsson var með flautuna og Kristján Már Ólafs var aðstoðardómari 1.
Breiðablik endaði á að vinna leikinn 2-1.