Borussia Mönchengladbach er búið að festa kaup á japanska miðverðinum Ko Itakura frá Manchester City.
Itakura hefur verið hjá Man City í þrjú ár án þess að spila leik fyrir félagið en hann hefur þó gert góða hluti úti á láni hjá Gröningen í Hollandi og Schalke í B-deild þýska boltans. Hann átti aðeins eitt ár eftir af samningnum við City.
Itakura er 25 ára gamall og var í lykilhlutverki hjá Schalke á síðustu leiktíð en félagið hefur ekki efni á því að festa kaup á honum. Gladbach er talið borga um 5 milljónir evra fyrir varnarmanninn sem var eftirsóttur af minnst þremur liðum í efstu deild Þýskalands í sumar.
Itakura á 8 landsleiki að baki fyrir A-landslið Japan og 24 fyrir U23 landsliðið.
🇬🇧 Welcome to Mönchengladbach, Ko!
— Gladbach (@borussia_en) July 2, 2022
🇯🇵 メンヒェングラードバッハはようこそ、滉! 💚#DieFohlen pic.twitter.com/nb5IbA80Il