Fotbolti.net
03.07.26 - 22:07
Haraldur Örn Haraldsson

Jökull með skilaboð - „Við erum hetjur og við erum illmenni"

Auglýsing
Jökull Andrésson.

Jökull Andrésson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Smá léttir, og svekktir á sama tíma. Þeir áttu meira leikinn í seinni hálfleik og við þurfum aðeins að læra að stjórna leiknum betur á pörtum. Rosa góður fyrri hálfleikur en þreytt að fá þá einmitt tvö mörkin á okkur sem við þurfum bara að laga. Á sama tíma þá voru þeir með mikla pressu á okkur og sóttu mikið. Þannig þetta er kannski bara allt í lagi úrslit," sagði Jökull Andrésson markvörður FH-inga eftir 2-2 jafntefli við Stjörnuna í kvöld.

Stjörnumenn sóttu stíft í seinni hálfleik og áttu nokkur algjör dauðafæri. Jökull varði hins vegar frábærlega vel og kom í veg fyrir að Stjarnan skoraði sigur markið.

„Það er rosalega fallegt af þér, takk fyrir," sagði Jökull fyrst við fréttamann, hógvær að vana. „Svarið er bara að maður vill hjálpa liðinu, þetta er ástæðan fyrir því að við æfum rosa mikið í hverri einustu viku og á öllum æfingum. Til að hjálpa liðinu eins mikið og maður getur gert, og sem betur fer náði ég að hjálpa þeim með nokkra bolta í dag. Þannig maður er að gera vinnuna sína," sagði Jökull.

Jói Kalli gagnrýnir eigin leikmenn - „Jökull gefur þeim bara mark"
TENGT EFNI

Jói Kalli gagnrýnir eigin leikmenn - „Jökull gefur þeim bara mark"

Lestu um leikinn: FH 2 - 2 Stjarnan

Jökull var gagnrýndur í síðasta leik fyrir að gefa mark, og því gott að geta svarað með góðri frammistöðu strax í næsta leik.

„Ég er ennþá á þeim vagni að það var ekki mér að kenna. Nei ég segi svona," segir Jökull léttur og hlær. „Að sjálfsögðu, svona er leikurinn fyrir alla markmenn á jörðinni. Ef ég get komið með einhver skilaboð á markmenn þá er það að ein mistök skilgreina þig ekki sem markmann. Við erum hetjur eða illmenni, svona er þetta bara. Ég er bara ógeðslega sáttur að vera þannig andlega og hvernig ég átti mína frammistöðu hér í dag. Þannig ég er bara mjög sáttur," sagði Jökull.

FH-ingar eru jafnir Þór að stigum sem eru í botnsætinu en með aðeins betri markatölu. Jökull hefur því þurft að týna boltann úr markinu nokkrum sinnum í sumar.

„Það er alltaf leiðinlegt, ég get lofað þér því. Sem markmaður vill maður aldrei týna boltann úr netinu. Eins og við erum búnir að vera að tala um allt tímabilið, með þessa vegferð sem við erum á. Við trúum á hana og treystum á hana. Ég og Jói og strákarnir, þetta er bara eitthvað sem við ætlum að halda áfram að gera. Stundum getur það verið erfitt í byrjun en eins og þú sagðir, við erum að koma með miklu betri frammistöður í seinustu leikjum. Þar sem við skilum töluvert betri varnarleik, og svo núna eins og í dag þá áttum við nokkrar góðar sóknir. Þetta er bara að halda áfram og ekkert bull," sagði Jökull.

Jökull hefur reynslu af fallbaráttu frá því í fyrra þegar hann féll með Aftureldingu, en hann segist ætla sér að vera hinumegin við strikið þegar þessu tímabili lýkur.

„Þetta er bara 'grind', hvað á maður annað að segja, þetta er lífið. Maður fer ekki með hausinn niður í næsta leik ef við töpuðum seinasta en áttum að vinna. Þetta er ástæðan fyrir því að fótboltinn er bestur og maður verður að halda áfram að njóta þó þetta sé harka. Þetta eru glæsilegir leikmenn, ungir og flottir leikmenn. Þetta er bara sturlað, og ef ég fæ að verja fleiri svona bolta, þá held ég að ég sé bara sáttur," sagði Jökull.

Viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Jökull í leiknum í kvöld.

Jökull í leiknum í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.