Fotbolti.net
03.07.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Onana aftur kominn til Trabzonspor á láni (Staðfest)

Onana aftur kominn til Trabzonspor á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Andre Onana markvörður Manchester United er genginn í raðir Trabzonspor í Tyrklandi að nýju en þetta er annað tímabilið í röð sem hann er lánaður til félagsins.

Það er engin klásúla um möguleg kaup en Trabzonspor mun borga laun Onana að fullu. Auk þess borgar félagið lánsgjald til United.
Onana lék 29 leiki fyrir Trabzonspor á síðasta tímabili eftir að United féll óvænt úr leik gegn D-deildarliðinu Grimsby í enska deildabikarnum á ágúst í fyrra.

United tapaði í vítakeppni en það var eini leikur Kamarúnans fyrir félagið á síðasta tímabili. Með Trabzonspor varð hann tyrkneskur bikarmeistari.

Onana á enn tvö ár eftir af samningi sínum við United en hann var meðvitaður um að ekki var möguleiki á að slá út Senne Lammens sem fyrsta val Michael Carrick.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.