Fotbolti.net
03.08.14 - 21:00
Grímur Már Þórólfsson

Behrami til Hamburg (Staðfest)

Behrami í leik gegn Íslandi

Behrami í leik gegn Íslandi

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalandslið
Svissneski landsliðsmaðurinn Valon Behrami hefur gengið til liðs við Hamburg frá Napoli.

Behrami hefur verið síðustu tvö ár hjá Napoli og vann hann ítalska bikarinn með liðinu. Nú mun þessi reyndi miðjumaður reyna fyrir sér í Bundesligunni í fyrsta skipti en hann hefur til að mynda spilað fyrir West Ham, Lazio og Fiorentina.

Þá á Behrami 48 landsleiki að baki fyrir svisslendinga en hann var í byrjunarliðinu í öllum leikjum þeirra á nýliðnu heimsmeistaramóti.
Hamburg rétt slapp við fall á síðasta tímabili eftir að hafa farið í umspil um að halda sér í deildinni gegn Fürth þar sem þeir unnu með fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Er liðið því í óða önn að styrkja sig fyrir komandi átök og mun Behrami vafalaust gera það.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.