03.08.14 - 12:46
Elvar Geir Magnússon
Facundo Ferreyra til Newcastle (Staðfest)

Facundo Ferreyra hefur skrifað undir hjá Newcastle.

Mynd: Getty Images

Hann hefur leikið fyrir yngri landslið Argentínu.

Newcastle United hefur fengið sinn sjöunda nýja leikmann í sumar en sóknarmaðurinn argentínski Facundo Ferreyra kemur á lánssamningi út tímabilið frá Shaktar Donetsk í Úkraínu.
Þessi 23 ára leikmaður er einn af sex leikmönnum Shaktar sem höfnuðu því að snúa aftur til Úkraínu vegna ástandsins í landinu.

„Facundo hefur sannað sig gegn öflugum liðum og er mikils metinn í Argentínu. Hann hefur mikla hæfileika og vonandi munu þeir skína hér hjá Newcastle,\" segir Alan Pardew, knattspyrnustjóri Newcastle.
Klásúla í lánssamningi Ferreyra gefur Newcastle kost á að kaupa hann alfarið eftir tímabilið.
Ferreyra skoraði sex mörk í 22 leikjum fyrir Shaktar á síðasta tímabili eftir að hafa komið frá Velez Sarsfield í júlí 2013.
Ferreyra ræddi við landa sinn Fabricio Coloccini, varnarmann Newcastle, áður en hann samþykkti tilboð enska félagsins.
„Ég er hrifinn af ensku úrvalsdeildinni og þegar ég frétti að Newcastle hefði áhuga var þetta ekki erfið ákvörðun,\" sagði Ferreyra.
Leikmennirnir sjö sem Newcastle hefur fengið í sumar:
Daryl Janmaat (Feyenoord)
Jack Colback (Sunderland)
Siem de Jong (Ajax)
Remy Cabella (Montpellier)
Emmanuel Riviere (Monaco)
Ayoze Perez (CD Tenerife)
Facundo Ferreyra (Shakhtar Donetsk)