03.08.14 - 22:00
Grímur Már Þórólfsson
Papadopoulos til Leverkusen (Staðfest)

Papadopoulos fagnar marki

Mynd: Getty Images

Papadopoulos fagnar marki

Mynd: Getty Images

Bayer Leverkusen hefur fengið gríska varnarmanninn Kyriakos Papadopoulos frá Schalke á láni út tímabilið.
Þessi 22 ára gamli varnarmaður hefur verið mikið frá síðustu tvö tímabil vegna meiðsla en vonast til að koma ferlinum aftur á stað hjá nýju félagi.
Þrátt fyrir ungan aldur og erfið meiðsli á leikmaðurinn 16 landsleiki að baki fyrir Grikki og þá hefur hann spilað yfir 60 leiki fyrir Schalke.

,,Ég er mjög ánægður með að félagskiptin séu gengin í gegn. Eins og Shalke er Leverkusen mjög metnaðarfullt félag. Því miður var ég mikið meiddur á síðasta tímabili en núna er ég heill og hef mikið metnað fyrir því að ná bæði persónulegum markmiðum og markmiðum Leverkusen fyrir komandi tímabil.\" Sagði Papadopoulos á heimasíðu Leverkusen.
Heimild: Soccernet